08. janúar 2008 klukkan 14:46
Jæja þá var haldið af stað í hestaferðina miklu miðvikudaginn 8. ágúst á afmælisdegi Sigrúnar systur. Keyrðum við sem leið lá norður í Kelduland til Stebba en hann var fararstjórinn okkar og tók hann á móti okkur með pompi og prakt. Eftir að hestarnir höfðu migið og velt sér vel og vandlega var lagt í hann og fyrsti áfangastaður var bærinn Merkigil. Þurftum við að fara yfir hið merkilega Merkigil til að komast að bænum og ber það gil nafn með rentu. Glæfralegt gil og bratt bæði niður og upp gilið. Sumir létu hestana bera sig en aðrir voru svottlan jaxlar að þeir létu sig hafa það að ganga það. Haldin var smá afmælisveisla í Merkigili þar sem Sigrún bauð upp á drykk en Jenný splæsti sviðasultu.
Daginn eftir var haldið að Hildarseli, notalegur kofi í Austurdalnum. Fyrst þurfti að ferja bílana frá Keldulandi yfir að Sölvanesi og urðu það um 160 km. sem aka þurfti um morguninn. Eftir það fórum við af stað í blíðviðri. Hross og menn spennt yfir því hvað dagurinn myndi bera í för með sér. Skemmtileg reiðleið og stoppuðum við vel við Ábæjarkirkju. Þar er messað einu sinni á ári, sunnudaginn um verslunarmannahelgina, áðum þar vel og lengi og hittum annan hestahóp þar og voru Árdís í Geldingaholti, Mummi frændi og Ólí Íshólm þar fremst í flokki. Fábært að hitta þau þarna á þessum stað. Eftir góða áningu með söngi og tilheyrandi við kirkjuna var haldið áfram. Komum við hjá Bólu-Hjálmari rétt áður en við lentum í Hildarseli. Þar er ekkert rafmagn og bannað að koma á bíl þangað þannig að við urðum að taka með okkur nesti fyrir kvöldið og daginn eftir og fannst okkur það mikið mál í fyrstu en svo var þetta bara gaman að raða í trússtöskurnar og setja þær á hestana. Það er nauðsynlegt að kunna að ríða með trúss. Eftir mikið hangiketsát og söng var lagst til hvílu.
Þriðji dagurinn tekinn með trompi með gammel og söngnum sem að honum fylgir. Í dag var ferðinni heitið í Laugarfell. Hestarnir að komast í gott form ásamt knöpunum. Skemmtileg reiðleið og fallegt var þegar við áðum við Fossá. Þar er gamalt gerði og var umhverfið í kringum ána með eindæmum fallegt. Riðið inn Hörgárdalinn þar sem við mættum öðrum hestahóp en sem betur fer misstum við ekki stóðin saman. Gott var að fara í laugina á Laugarfelli og ekki var nú verra að vera komin í rafmagnsmenninguna aftur.
Kristín Bjarnadóttir
07. janúar 2008 klukkan 13:59
Sunnudaginn 5. ágúst um verslunarmannahelgi voru þeir Högni Jökull og Ásgeir Jaki skírðir. Axel sá um þá athöfn í Stóra-Núpskirkju. Veðrið var frábært og stóðu þeir sig eins og hetjur undir skírn. Bjarney og Helena voru skírnarvottar. Boðið var upp á kaffi í Knarrarholti eftir skírn og sofnuðu nýskírðu piltarnir vært í skírnarkjólunum sínum og létu gestaganginn og skvaldrið ekki hafa nein áhrif á svefninn sinn. Setið var bæði úti og inni og kökur hámaðar í sig og skolað niður með kaffisopa. Tókst vel í alla staði. Til hamingju með nöfnin ykkar!
Kristín Bjarnadóttir
03. janúar 2008 klukkan 10:39
Boðaði til safnaðarfundar vegna væntanlegrar hestaferðar í Austurdalinn í Skagafirði þann 8. ágúst næstkomandi. Mannskapurinn kom að sjálfsögðu ríðandi þar sem veðrið var með eindæmum gott. Bauð upp á afgang frá brúðkaupinu bæði í mat og drykk og mæltist það vel fyrir. Ákveðið var hvað hver átti að gera hvað fyrir ferðina og hvað hver átti að skaffa. Við Haddi fylgdum þeim svo fram í dal eftir fundinn.
Kristín Bjarnadóttir
20. nóvember 2007 klukkan 17:27
Jæja það tók eitt ævintýrið við af öðru hjá okkur Hadda og þann 19. júlí gerðumst við afi og amma. Linda og Atli gáfu okkur ekki bara eitt barnabarn heldur tvö. Tvo drengi sem komu í heiminn að kvöldi 19. júlí en áttu ekki að koma fyrr en 21. ágúst. Þeir voru teknir með keisara þar sem að hríðirnar sem að gengu yfir Lindu gerðu ekki nógu mikið gagn og hún var farin að þreytast þó nokkuð. Annar reyndist vera 1700 gr en hinn 2.410 gr. Algjörir gullmolar.
Kristín Bjarnadóttir
01. nóvember 2007 klukkan 11:55
Helgina eftir brúðkaupið ákváðum við Haddi að slugsa svoldið (alveg kominn tími á það). Fengum Guðbjörgu og Ragga með okkur í lið og þau komu ríðandi hingað og svo riðum við bakdyramegin í Fossnes þar sem að heksið skellti sér með okkur þegar hún var búin að losa sig við sitt lið og þaðan var haldið í Heiðargerðið. Daginn eftir riðum við að Minna-Hofi en Gestur og Vala voru ekki heima en Eiríkur sonur þeirra tók á móti okkur með herlegheitum og sagði okkur af nýrri leið í Árnes - Skógargötuleiðina. Engan skóg fundum við en leiðin var góð öngvu að síður. Fórum upp Hamraholtið og komum við hjá Höllu Siggu og Bikka þar sem boðið var upp á wisky í ómældu magni. Þaðan fórum við svo heim í Laxárdal og grilluðum með stæl. Frábær helgi með frábæru fólki.
Kristín Bjarnadóttir
01. nóvember 2007 klukkan 11:42
Tókst með eindæmum vel. Þau sögðu bæði já (sem betur fer) og Palli Óskars söng eins og honum er einum lagið (söng reyndar fleira en eitt lag). Fallegt brúðkaup, góð stemmning og allir í hátíðarskapi. Komið við í Austurhópinu á leiðinni heim. Veislan tókst vel í alla staði en þið hafið örugglega heyrt og séð allt um það á síðunni hennar Bjarneyjar. Til að gera langa sögu stutta að þá var þetta bara FRÁBÆR dagur og gaman að kynnast liðinu hans Eyþórs í gegnum þetta brúðkaupsbrölt.
Kristín Bjarnadóttir
23. september 2007 klukkan 16:14
Skellltum okkur í Þórsmörk með fjölskyldunni. Allir fóru á föstudeginum nema við Haddi og GBH en við komum á laugardeginum. Brjáluð blíða og okkur Hadda tókst að villast smá eða þannig, við komum við í Húsadalnum sem að er kannski ekki alveg í leiðinni. Þegar við komum svo loksins í Langadal biðu allir fjölskyldumeðlimir eftir okkur hinu megin við Krossá og var það ósköp notaleg sjón að sjá þau öll þar. Komum okkur svo fyrir á frábæran stað sem að þau voru búin að finna. Sólin skein í heiði og við fengum okkur göngutúr og grilluðum svo um kvöldið. Við Haddi fengum okkur svo labbitúr yfir í Húsadalinn kl. 1 um nóttina og það var frábær upplifun. Vera svona ein saman á jónsmessunótt í frábæru veðri og í frábæru landslagi. Slakað á daginn eftir og svo keyrt heim. Ferð sem seint gleymist. Ekki gleyma að skoða myndirnar!
Kristín Bjarnadóttir
10. september 2007 klukkan 16:41
Auðvitað fórum við Haddi í útskriftarferð. Þessi ferð var önnur útskriftarferðin okkar en við fórum til Frakklands og Þýskalands í þeirri fyrri en núna fórum við til Austurríkis og Þýskalands. En hér kemur sagan. Við sváfum hjá Bjarneyju og Eyþóri nóttina fyrir flugið eftir að hafa kíkt á gamla settið á Sléttó. Vöknuðum kl. 4.15 og skötuhjúin keyrðu okkur á flugvöllinn. Fluginu seinkaði um hálftíma. Lendum kl. 12.50 að staðartíma í Frankfurt. Þar beið rúta eftir okkur og keyrt af stað til Ingolstadt. Löng keyrsla framundan. Komum á hótelið kl. 19.15 og vorum þá búin að vera á keyrslu í 5-6 tíma með 2 stoppum. Hótelið var æðislegt og eftir flottan kvöldverð var setið og spjallað við fólkið en þessi ferð var á vegum Bændaferða. Fengum okkur svo góðan göngutúr eftir að vera búin að sitja í flugvél og rútu allan daginn.

Hjónarúmið var ekkert smá stórt. Haddi sagði að gaflinn á því væri um 4 metrar. Ingolstadt er þekkt fyrir framleiðslu á Audibílum. Æðislegur morgunmatur og flott hótel.
Dagur 2. Föstudagurinn langi. Lagt af stað kl. 9 eftir góðan morgunmat. Keyrðum að Chiemsee vatni og sigldum út í Herraeyju þar sem Lúðvík II reisti höll eftir fyrirmynd Versala í Frakklandi. Hann náði ekki að klára hana út af peningaskorti en flott var hún. Borðuðum svo og keyrðum til Mondsee (Mánavatn). Komum þangað um 5-leytið. Gengum upp að kapellu og horfðum á útsýnið þaðan. Kálfagúllas og göngutúr um kvöldið. Furðulegt hótel, wc í einu herbergi og svo þarf að ganga gegnum stofuna inn í annað herbergi þar sem vaskurinn var ásamt sturtu.
Dagur 3. Laugardagur. Lagt af stað kl. 9.30 eftir morgunmatinn og keyrðum upp í 1.350 metra hæð og skoðuðum útsýnið þaðan í snjó. Þetta var við Wolfgangsee. Keyrðum svo gegnum Strobl þorpið og yfir í St. Wolfgang. Þar fengum við góðan tíma til að labba um og fá okkur hádegisverð. Borðuðum við Wolfgangsee í sól og 20 stiga hita - bara frábært. Næst var farið með ferju yfir til St. Gilgen sem var uppáhaldsstaður Helmuts Kohl fyrrverandi kanslara Þýskalands. Þar fórum við í kláf upp í 1.520 metra hæð á Tólfhornafjalli (Zwölfhorn). Vorum ca. korter upp og þurftum að fá okkur hjartastyrkjandi á leiðinni (rosa leiðinlegt). Þetta vandiist eða snapsinn fór að virka og þegar við vorum laus úr kláfnum uppgötvuðum við að nýja myndavélin varð eftir í honum. Við bönnkuðum og bönkuðum og héldum að við værum búin að tapa henni en þá kom starfsmaður með hana til okkar sem betur fer. Gengum restina upp í 1.520 m. hæð og þvílíkt útsýni! Öll Alpafjöllin í allri sinni dýrð og þorpin fyrir neðan eins og maurar. Þegar niður var komið var ekið heim í Mondsee. Um kvöldið skelltum við okkur á smá pöbbarölt ásamt fleirum úr hópnum.
Dagur 4. Páskadagur. Lagt af stað til Saltzburg kl. 9. Eyddum deginum þar. Við Haddi löbbuðum upp í kastalann og þaðan að nýlistasafninu. Þetta var göngutúr upp á 2 klst. upp og niður hóla og hæðir. Þegar klukkan sló 12 högg á páskadag vorum við stödd upp á Munkafjalli og heyrðum í kirkjubjöllunum þaðan. Fallegir hljómar! Fórum svo niður og fengum okkur að borða og skelltum okkur svo á hestvagn sem fór með okkur hring um borgina. Hittum svo liðið kl. 16.15 og keyrðum svo heim í Mondsee. Vínarsnitzel um kvöldið og svo pöbbarölt um kvöldið.
Dagur 5. Annar í páskum. Lögðum af stað kl.10 eftir góðan nætursvefn. Eyrnatapparnir klikka ekki (helv.kirkjuklukkurnar). Í dag fórum við til Hallstadt. Tók ca. klst. að keyra þangað. Hallstadt er í syðsta hluta Austurríkis, Alpafjöllin og jöklar taka við. Lítill bær en notalegur. Hér hafa saltnámur verið notaðar síðustu 7000 ár. Ekki er hægt að láta fólk hvíla í gröfinni sinni nema í 15 ár og þá eru hauskúpurnar og lærleggirnir hreinsaðir og sett í beinahús. Hauskúpurnar eru skreyttar og nöfnin skrifuð á þær. Þetta er gert út af því að láglendið er lítið sem ekkert og ekki var bílfært til Hallstadt lengi vel. Keyrðum svo um vatnasvæðin og skoðuðum þorpin. Rosalega fallegt og ekki spillti veðrið. Vorum komin upp á hótel uppúr 4 og þá fengum við Haddi okkur klukkustundar göngutúr. Kalkúnn í matinn um kvöldið og svo beið rúmið eftir okkur.
Dagur 6. Þriðjudagur. Vöknuðum kl. 7 en Haddi hafði vaknað kl. 4 um nóttina við það að bæjarbúarnir voru að setja upp markaðina sína fyrir utan hótelið okkar. Fengum okkur enn einn göngutúrinn í morgunsárið og síðan var lagt af stað til Nurnberg kl. 9. Bless Mondsee og takk fyrir okkur! Vorum komin á Maritim hótelið upp úr kl. 3. Komum okkur fyrir og svo voru göngugöturnar skoðaðar. Flott hótel.
Dagur 7. Miðvikudagur. Lúlluðum svolítið og fengum okkur svo frábæran morgunverð. Og svo hófst gangan!!! Sólin skein og hitinn var orðinn mikill svo að við settumst niður og fengum okkur ís. Fundum C&R verslun og versluðum okkur létt föt og skutumst upp á hótel til að hafa fataskipti. Skelltum okkur svo aftur í sömu verslun og versluðum helling á okkur og strákana. Enduðum þennan góðan dag á því að fá okkur súpu dagsins á einhverjum bar og nutum sólarinnar. Heim í sturtu og slökuðum okkur. Góður kvöldverður og gott rúm á eftir.
Dagur 8. Heimfarardagur. Klukkan hringdi kl. 6 og brottför frá hóteli kl. 8. Flugið var síðan kl.14.00 og þar með lýkur þessari ferðasögu!
Kristín Bjarnadóttir
07. september 2007 klukkan 12:54
Jæja nú er maður orðinn SVÆÐA-OG VIÐBRAGÐSFRÆÐINGUR, geri aðrir betur!
Ég útskrifaðist 2. apríl 2007 eftir 19 mánaða nám. Ég þurfti að stunda nám í FSU til að ná mér í bóklegu greinarnar sem að mig vantaði upp á og var það bæði kvíði og tilhlökkun að setjast á skólabekk með samöldrum Guðna Björgvins. Þetta tókst ótrúlega vel og mér var afskaplega vel tekið bæði af nemendum og kennurum.
Kristín Bjarnadóttir